Fotbolti.net
25.03.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð

Ambrose kominn til Newcastle. (Staðfest)

Newcastle eru búnir að kaupa Darren Ambrose miðvallarleikmann Ipswich á 1 milljón punda. Möguleiki er á að Ambrose spili þó út tímabilið hjá Ipswich á lánssamningi.
Ambrose gekk frá formsatriðum samningsins í gærkvöldi og hjá Newcastle mun hann hitta fyrir Kieron Dyer og Titus Bramble fyrrum leikmenn Ipswich. ,,Ég er spenntur yfir að vera á leið til Newcastle United, en ég hræðist það soldið." sagði Ambrose í gær. ,,Ekki bara það heldur er þetta allt svolítið ruglingslegt. Hugur minn hringsnýst út af þessu öllu."

Þar sem Ipswich er í greiðslustöðvun gat Newcastle keypt Ambrose strax þrátt fyrir að félagsskiptaglugginn sé lokaður. Næst er búist við að gengið verði frá sölu Ipswich á Hermanni Hreiðarssyni til Portsmouth og í framhaldi af því verður Matt Holland að öllum líkindum seldur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.