Eberechi Eze verður frá næsta mánuðinn eða svo vegna meiðsla á kálfa. BBC segir að hann gæti verið frá í allt að sex vikur vegna meiðslanna sem hann varð fyrir í leiknum gegn Leverkusen í síðustu viku. Hann var valinn í 35 manna hóp Thomas Tuchel fyrir komandi leiki enska landsliðsins.
Eze missti af leiknum gegn Manchester City í deildabikarnum og Mikel Arteta, stjóri Arsenal, sagði að Eze færi í nánari skoðun í vikunni. Arsenal er í baráttu á þremur vígstöðvum; í deildinni, Meistaradeildinni og í enska bikarnum. Því er högg að geta ekki nýtt krafta Eze í næstu leikjum.

Ef Eze verður frá í sex vikur missir hann af leikjum gegn Southampton (bikar), Sporting (Meistaradeild), Bournemouth (deild), Sporting (seinni leikur), Manchester City (deild) og Newcastle (deild).
Arsenal mun, að öllum líkindum, hins vegar endurheimta Martin Ödegaard fljótlega úr meiðslum.
Alls sex leikmenn Arsenal, sem alla jafna eru landsliðsmenn, fóru ekki í landsliðsverkefni vegna meiðsla. Gabriel Maghalhaes verður ekki með Brössum, William Saliba verður ekki með Frökkum, Eze verður ekki með Englendingum, Leandro Trossard verður ekki með Belgum, Martin Ödegaard verður ekki með Norðmönnum og Jurrien Timber verður ekki með Hollendingum.
Athugasemdir