Fotbolti.net
25.03.26 - 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jói útherji

Á sölulista til að fjármagna kaupin á Rashford

Marcus Rashford.

Marcus Rashford.

Canon

Mynd: EPA

Barcelona er talið ætla að selja leikmenn í sumar til að fjármagna kaup á Marcus Rashford. Eins og flestir fótboltaaðdáendur vita er fjárhagsstaða Barcelona ekkert sérlega góð.

Rashford, sem er á láni frá Manchester United, hefur náð sér vel á strik á Spáni og hefur aftur unnið sér inn sæti í enska landsliðinu.
Börsungar vilja halda honum og spurðust fyrir um hvort það væri hægt að fá hann aftur á láni en Man Utd vill selja hann fyrir 26 milljónir punda.

Til að gera slíkan samning mögulegan er Barcelona nú sagt íhuga að setja framherjann Ferran Torres á sölulista í sumar.

Hinn 26 ára gamli Torres gekk í raðir Barcelona árið 2022 eftir tvö tímabil hjá Manchester City, en samningur hans rennur út árið 2027. Félagið er talið vilja forðast að missa hann frítt í framtíðinni.
Ferran Torres.

Ferran Torres.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.