Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 25. mars 2026 19:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ellefu leikmenn sem gætu fyllt í skarð Salah
Mohamed Salah.
Mohamed Salah.
Mynd: EPA
Khvicha Kvaratskhelia.
Khvicha Kvaratskhelia.
Mynd: EPA
Yan Diomande.
Yan Diomande.
Mynd: EPA
Anthony Gordon.
Anthony Gordon.
Mynd: EPA
Nico Williams faðmar hér Lamine Yamal.
Nico Williams faðmar hér Lamine Yamal.
Mynd: EPA
Eins og fjallað hefur verið um þá er Mohamed Salah á leið frá Liverpool að þessu tímabili loknu. Salah hefur verið magnaður fyrir Liverpool frá því hann kom til félagsins fyrir níu árum síðan og mun kveðja sem einn allra besti leikmaður í sögu enska boltans.

Það verður stórt verkefni fyrir Liverpool að fylla í það skarð sem Salah skilur eftir sig.

Staðarmiðillinn Liverpool Echo tók saman ellefu mögulega arftaka fyrir Salah. Skoðum þá aðeins frekar.

Khvicha Kvaratskhelia (PSG)
Kvaratskhelia er enn einn mest spennandi sóknarmaður Evrópu og hefur haldið áfram að skína eftir að hann færði sig til Paris Saint-Germain í fyrra. Hann hjálpaði Parísarliðinu að vinna Meistaradeildina.

Bradley Barcola (PSG)
Annar kantmaður Paris Saint-Germain sem hefur tekið stór skref á síðustu misserum. Barcola, sem er 23 ára, hefur sýnt gæði sín bæði í frönsku deildinni og Meistaradeildinni með hraða og beinskeyttum leik.

Desire Doue (PSG)
Þriðji leikmaður PSG á þessum lista. Doue er með mikinn sprengikraft og mikil gæði en hann braust fram á sjónarsviðið á síðustu leiktíð þegar PSG vann Meistaradeildina. Hann er fjölhæfur í sókninni, getur spilað bæði á kantinum og fyrir aftan framherja og er sérstaklega sterkur í að taka menn á og spila á litlu svæði.

Michael Olise (Bayern München)
Tveimur árum eftir að hann yfirgaf Crystal Palace gæti Liverpool reynt að lokka fransk-breska kantmanninn aftur í ensku úrvalsdeildina. Hefur sýnt það hjá Bayern að hann hefur alla burði til að vera einn besti leikmaður í heimi.

Karim Adeyemi (Borussia Dortmund)
Adeyemi er annar Bundesliguleikmaður sem hefur reglulega verið orðaður við félagaskipti til Englands. Þýski landsliðsmaðurinn, sem er aðeins 24 ára, er fjölhæfur sóknarmaður sem getur einnig leyst níuhlutverkið.

Yan Diomande (RB Leipzig)
Diomande hefur verið ein skærasta stjarna þýska boltans á tímabilinu, en framherjinn hefur skorað tíu mörk þrátt fyrir að hafa aðeins orðið 19 ára í nóvember. Unglingurinn sagði einnig í samtali við Bild fyrr í þessum mánuði að Liverpool sé uppáhaldslið föður hans og það væri hans stærsta ósk að sjá hann í búningi Liverpool.

Anthony Gordon
Gordon er annar leikmaður sem kemur úr Liverpool-aðdáendafjölskyldu. Og þar sem Newcastle virðist síður líklegt en Liverpool til að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili gæti skapast tækifæri til að fá enska landsliðsmanninn.

Yankuba Minteh
Minteh, fyrrum liðsfélagi Anthony Gordon hjá Newcastle, er annar mögulegur kostur úr ensku úrvalsdeildinni. Arne Slot þekkir kantmann Brighton vel eftir að hafa haft hann á láni hjá Feyenoord, og Minteh hefur sýnt jákvæð teikn hjá Brighton. Hann er bara 21 árs gamall.

Nico Williams
Nico Williams er annað nafn sem hefur lengi verið orðað við Liverpool. Þessi kantmaður Athletic Bilbao skrifaði undir tíu ára samning í fyrra, en eftir tímabil sem hefur einkennst af meiðslum er talið að hann gæti verið opinn fyrir áhuga frá ensku úrvalsdeildinni.

Rafael Leao
Rafael Leao gæti einnig verið á förum í sumar, en aðeins tvö ár eru eftir af samningi hans við AC Milan. Ef ekki næst samkomulag um nýjan samning á næstu mánuðum gæti ítalska félagið ákveðið að selja portúgalska landsliðsmanninn sem er þekktur fyrir mikinn hraða.

Mohammed Kudus
Mohammed Kudus er annar leikmaður sem gæti verið fáanlegur á góðu verði í sumar. Erfitt gengi Tottenham frá því að félagið fékk hann frá West Ham gæti orðið til þess að Kudus skoði stöðu sína, óháð því hvernig tímabilið endar. Liverpool hefur fylgst með honum frá tíma hans hjá Ajax.
Slapp
Athugasemdir
banner