Mohamed Salah tilkynnti það í gær að hann myndi yfirgefa Liverpool eftir tímabilið.
Salah skrifaði undir nýjan tveggja ára samning áður en síðasta tímabil kláraðist en hann mun ekki klára samninginn.
Salah skrifaði undir nýjan tveggja ára samning áður en síðasta tímabil kláraðist en hann mun ekki klára samninginn.
Jason Cundy, sérfræðingur talkSPORT, segir að Liverpool hafi tekið ranga ákvörðun þegar samningur Salah var endurnýjaður á síðasta ári.
„Þeir gáfu röngum leikmanni þennan samning," sagði Cundy og bætti við að félagið hefði átt að gefa Trent Alexander-Arnold þann samning sem Salah fékk. Egyptinn er með 400 þúsund pund í vikulaun.
Alexander-Arnold, sem er 27 ára, fór til Real Madrid á frjálsri sölu síðasta sumar eftir að hann komst ekki að samkomulagi við Liverpool um nýjan samning.
Athugasemdir


