Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði Íslands, gerði sér lítið fyrir og sótti sigur á Old Trafford í Meistaradeildinni í kvöld.
Leikurinn var mjög fjörugur en þetta var fyrri leikur liðanna í 8-liða úrslitum.
Leikurinn var mjög fjörugur en þetta var fyrri leikur liðanna í 8-liða úrslitum.
Pernille Harder átti stórleik fyrir Bayern en hún skoraði tvisvar. Bayern komst þrisvar yfir í leiknum og náði að lokum að landa 2-3 sigri. Glódís var með fyrirliðabandið hjá Bayern í leiknum og leiddi lið sitt út í leikhúsi draumanna.
Bayern er í góðum málum fyrir seinni leikinn í næstu viku, rétt eins og Barcelona sem valtaði yfir erkifjendur sína í Real Madrid á útivelli í kvöld. Börsungar eru líklega sigurstranglegasta liðið í þessari keppni.
Real Madrid 2 - 6 Barcelona
0-1 Ewa Pajor ('7 )
0-2 Esmee Brugts ('13 )
1-2 Linda Caicedo ('30 )
1-3 Irene Paredes ('32 )
1-4 Ewa Pajor ('57 )
1-5 Vicky Lopez ('64 )
2-5 Linda Caicedo ('66 )
2-6 Alexia Putellas ('89 )
Manchester Utd 2 - 3 Bayern
0-1 Pernille Harder ('2 )
1-1 Maya Le Tissier ('24 )
1-2 Pernille Harder ('71 )
2-2 Hanna Lundkvist ('76 )
2-3 Momoko Tanikawa ('84 )
Athugasemdir




