Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 25. mars 2026 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þessi félög geta gleymt því að fá Olise
Olise hér til vinstri.
Olise hér til vinstri.
Mynd: EPA
Michael Olise er ein stærsta stjarna Bayern München um þessar mundir.

Franski kantmaðurinn hefur því vakið áhuga annarra stórliða, þar á meðal Liverpool, Manchester City og Real Madrid. Liverpool er sagt horfa til hans sem arftaka Mohamed Salah til dæmis.

En þessi félög geta gleymt því að fá Olise. Þau eru skilaboðin frá Max Eberl, yfirmanni fótboltamála hjá Bayern.

„Þetta er ekki eitthvað sem við eyðum einni sekúndu í,“ sagði Eberl.

„Hann er leikmaður Bayern München og hér hefur hann öll þau tækifæri sem toppleikmönnum dreymir um. Við munum byggja framtíðina í kringum hann,“ sagði hann við Bild.

Olise hefur átt magnað tímabil og er að koma að marki að meðaltali í nánast hverjum leik.
Slapp
Athugasemdir
banner