Fotbolti.net
25.03.26 - 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Verða Salah og Messi liðsfélagar?

Mohamed Salah.

Mohamed Salah.

Canon

Mynd: EPA

Greint var frá því í gær að Mohamed Salah sé á förum frá Liverpool eftir tímabilið. Hann og félagið hafa komist að samkomulagi um að hann megi fara á frjálsri sölu næsta sumar.

Þá spyrja menn: Hvað næst?
Salah fórnar risaupphæð - Þetta eru möguleikar hans
TENGT EFNI

Salah fórnar risaupphæð - Þetta eru möguleikar hans

Salah hefur verið mest orðaður við Sádi-Arabíu en ekki er hægt að útiloka MLS-deildina, og þá sérstaklega Inter Miami, úr þessari baráttu.

Samkvæmt The Independent er Inter Miami tilbúið að leggja fram tilboð í Salah og freista þess að fá hann til Bandaríkjanna, þrátt fyrir samkeppni frá Sádí-Arabíu þar sem launin eru mjög há.

Slík félagaskipti væru þó ekki án vandkvæða. Inter Miami hefur eins og er ekki laust „Designated Player“-pláss, sem þarf til að fá leikmann á borð við Salah utan launaþaks MLS-deildarinnar. Til að gera samninginn að veruleika þyrfti félagið því að endurskipuleggja leikmannahóp sinn verulega í sumar.

Það væri þó athyglisvert að sjá Salah spila með Lionel Messi í Bandaríkjunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.