Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 25. mars 2026 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fer 16 ára Dowman á HM? - Walcott vonar ekki
Max Dowman.
Max Dowman.
Mynd: EPA
Theo Walcott þekkir það vel að fara á stórmót með Englandi sem táningur. Hann fór á HM 2006 þegar hann var aðeins 17 ára gamall.

Núna er í umræðunni að Max Dowman, 16 ára gamall leikmaður Arsenal, fari með Englandi á HM í sumar. Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, hefur neitað að útiloka að það muni gerast.

Walcott vonast til þess að Dowman fari ekki á mótið. Hann byggir það á eigin reynslu. „Ég vona að hann fari ekki,“ sagði Walcott við Daily Mirror.

„Ég meina það ekki á vondan hátt, því ef ég gæti farið aftur í tímann myndi ég breyta hlutum. Ég myndi segja við sjálfan mig: 'Nei, nei, ekki gera þetta’ - en reyndu svo að segja það við 17 ára strák."

Walcott segir að Dowman verði að leggja áherslu á það að þroskast á sínum hraða, sérstaklega andlega. „Með tímanum mun hann komast í landsliðið, já, en mér finnst þetta ekki rétti tíminn og ég tel að það séu betri leikmenn sem eiga frekar skilið að vera þar núna," sagði Walcott.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner