PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 20:45
Sverrir Örn Einarsson
Ögmundur á förum frá Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Ögmundur Kristinsson er á förum frá Val en þetta kom fram í hlaðvarpinu Dr.Fooball auk þess sem Hjörvar Hafliðason hélt þessu fram í færslu á X nú í kvöld.

Hjörvar hélt því fram í þættinum að Ögmundur hafi verið boðaður á fund stjórnar hjá Val á dögunum þar sem honum hafi verið tilkynnt að hans starfskrafta yrði ekki óskað lengur.

Ögmundur sem á að baki 15 A landsleiki gekk til liðs við Val frá Gríska félaginu A.E. Kifisia árið 2024. Hann hefur mikið verið á meiðslalista Vals og ekki spilað jafn marga leiki á tíma sínum hjá Val og vonir stóðu til.

Í Dr.Football var einnig rætt hvað tæki við hjá Ögmundi, hvort hann myndi velja sömu leið og Aron Jóhannsson sem fékk sömu skilaboð frá Val í vetur og kaus að sitja út samning sinn hjá félaginu eða hvort hann kjósi að finna sér annað félag fyrir gluggalok.


Slapp
banner
banner
banner