Lilleström vann óvæntan 0-3 sigur á Vålerenga í erkifjendaslag í norska boltanum fyrr í dag.
Matthías Vilhjálmsson var í byrjunarliði Vålerenga og byrjaði Arnór Smárason inná í liði Lilleström.
Eftir leikinn voru viðtöl í gangi og ákvað Aleksander Melgalvis, leikmaður LSK, að nýta tækifærið og senda skilaboð. Hann tók LSK fána, hljóp með hann á miðjan völlinn og kom honum fyrir á miðjupunktinum.
Starfsteymi Vålerenga tók ekki vel í þetta og var fáninn fjarlægður, en stuðningsmenn félagsins voru enn reiðari. Þeir óðu nokkrir inn á völlinn og fóru að slást við stuðningsmenn LSK sem voru þegar komnir á völlinn til að fagna með sínum mönnum.
Scenes pic.twitter.com/XqBCHVKzj5
— Siavoush Fallahi (@SiavoushF) May 25, 2019
Athugasemdir