Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 25. maí 2019 21:30
Ívan Guðjón Baldursson
Portúgal: Sporting sigraði Porto í úrslitaleiknum
Mynd: Getty Images
Sporting 2 - 2 Porto (5-4 í vítaspyrnukeppni)
0-1 Tiquinho Soares ('41)
1-1 Bruno Fernandes ('45)
2-1 Bas Dost ('101)
2-2 Felipe ('121)

Porto tapaði úrslitaleik portúgalska bikarsins gegn Sporting CP í kvöld og lýkur því tímabilinu án stórs titils. Benfica vann deildina með tveggja stiga mun og fékk 87 stig úr 34 leikjum.

Staðan var jöfn eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik. Tiquinho Soares skoraði fyrir Porto og jafnaði Bruno Fernandes skömmu síðar, rétt fyrir leikhlé.

Porto gjörsamlega átti seinni hálfleikinn en tókst ekki að skora svo framlengja þurfti leikinn.

Bas Dost skoraði í framlengingunni og virtist Sporting ætla að stela sigrinum, allt þar til Felipe jafnaði í uppbótartíma. Því var blásið til vítaspyrnukeppni.

Pepe og Fernando klúðruðu sínum spyrnum í liði Porto og hafði Sporting á endanum betur, 5-4, í vítaspyrnukeppninni. Þetta er sjöunda vítaspyrnukeppnin í röð sem Porto tapar.

Þetta eru frábærar fréttir fyrir Sporting sem var í algjöru rugli á þessum tíma í fyrra og missti í kjölfarið leikmenn á borð við Rui Patricio og Gelson Martins frá sér.
Athugasemdir
banner
banner
banner