Fotbolti.net
26.06.26 - 00:28
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu mörkin: Elanga jafnaði með stórkostlegu skoti - Holland komið með þrjú

Maeda fagnar marki sínu gegn Svíum

Maeda fagnar marki sínu gegn Svíum

Canon

Mynd: EPA

Það hefur verið nóg um að vera síðustu mínútur í leikjum F-riðils heimsmeistaramótsins. Staðan er 1-1 í leik Japans og Svíþjóðar á meðan Holland er 3-1 yfir gegn Túnis.
Eftir rólegan fyrri hálfleik komust Japanir yfir með frábæru marki á 56. mínútu. Ritsu Doan átti þá glæsilega sendingu inn á Daizen Maeda sem kláraði færið vel.

Sjáðu frábært samspil í marki Japans

Anthony Elanga svaraði nokkrum mínútum síðar með stórkostlegu marki. Hann fékk boltann hægra megin, færði hann yfir á vinstri fótinn og þrumaði honum niðri í vinstra hornið.

Sjáðu glæsiskot Elanga

Hollendingar komust í 2-0 gegn Túnis en fóru að hleypa hættunni heim í síðari hálfleik. Túnismenn náðu að minnka muninn áður en Jan Paul van Hecke kom Hollendingum aftur tveimur mörkum yfir.

Túnis hefur nú fengið tólf mörk á sig á HM.

Sjáðu þriðja mark Hollendinga
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.