Fotbolti.net
26.06.26 - 00:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dressmann

Stefán Pálsson spáir í leiki dagsins á HM

Stefán Pálsson.

Stefán Pálsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það klárast tveir riðlar til viðbótar á HM næsta sólarhringinn. Við fengum sagnfræðinginn og varaborgarfulltrúann Stefán Pálsson til að spá í spilin.

Þess má geta að stórleikur Noregs og Frakklands verður sýndur á stóra tjaldinu í Tónabíói. Þar verður Stefán fyrir leik og fræðir gesti um sögu HM. Það eru allir velkomnir og það verður meira að segja margverðlaunaður matarvagn fyrir utan.
Paragvæ 2 - 2 Ástralía (02:00)
Við sem dáðum Chilavert, skokkandi upp völlinn í markmannshönskunum sínum til að taka vítaspyrnur eða háskalegar aukaspyrnur, eigum stað í hjartanu fyrir Paragvæ. Núverandi lið hefur samt ekki náð að heilla. Paragvæ kemst tvisvar yfir en Ástralir jafna í bæði skiptin og herja út annað sætið í riðlinum.

Bandaríkin 4 - 1 Tyrkland (02:00)
Maður vill helst að lið sem fallin eru úr keppni nái að bjarga andlitinu með því að landa úrslitum í lokaleiknum, en Tyrkir höndla mótlæti ekki vel og eru andlega búnir að stimpla sig út. Stærsta vandamál Pochettino núna er væntingastjórnunin, þar sem bandaríska pressan er farin að gæla við heimsmeistaratitilinn. Það mun ekki minnka við þennan sigur.

Noregur 3 - 2 Frakkland (19:00)
Ef einhver hefði sagt manni fyrir þrjátíu árum að Norðmenn yrðu kandídatar í heimsmeistara – en myndu klikka á því vegna þess að vörnin væri ekki nógu sterk, hefði maður snarlega pantað Klepp-hraðferð. Tröllabarnið skorar tvö og Mbappé sömuleiðis. Einhver minni spámaður klára þetta svo fyrir okkar óþolandi heppnu og ríku frændur í blálokin. Þakið mun rifna af troðfullu Tónabíói.

Senegal 2 - 1 Írak (19:00)
Al-Hamadi náði nánast engu flugi hjá mínum mönnum í Luton í vetur en getur ekki hætt að skora fyrir íraska landsliðið. Hann kemur þeim yfir en hinir mórölsku sigurvegarar Afríkukeppninnar 2026 landa sigri og halda áfram að gera þetta að draumakeppni afrísku liðanna.
Stærsta vandamál Pochettino núna er væntingastjórnunin.

Stærsta vandamál Pochettino núna er væntingastjórnunin.

Canon

Mynd: EPA

Noregur mætir Frakklandi.

Noregur mætir Frakklandi.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.