Íslenski boltinn fer að rúlla aftur í dag eftir dágott frí en í dag var slakað á samkomubanni og voru meðal annars líkamsræktarstöðvar opnaðar á ný.
Sjö æfingaleikir eru á dagskrá í íslenska boltanum í dag en Leiknir R. mætir Kórdrengjum klukkan 18:00 á Domusnova-vellinum. Þróttur R. og Þróttur V. spila þá á Eimskipsvellinum.
KH og KV spila á Hlíðarenda klukkan 20:00 en hér fyrir neðan má sjá alla æfingaleiki dagsins.
Leikir dagsins:
18:00 Leiknir R. - Kórdrengir (Domusnova völlurinn)
18:30 Þróttur R. - Þróttur V. (Eimskipsvöllurinn)
19:00 Hvíti Riddarinn - KFB (Tungubakkar
19:00 Augnablik - Smári (Fagrilundur)
20:30 Álafoss - KFG (Úlfarsárdalur)
20:00 Kría - Björninn (Vivaldi-völlurinn)
20:00 KH - KV (Hlíðarendi)
Athugasemdir