Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 25. maí 2022 19:02
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Stjörnunnar og KR: Óskar Örn mætir sínum gömlu félögum
Óskar Örn Hauksson byrjar gegn sínum gömlu félögum
Óskar Örn Hauksson byrjar gegn sínum gömlu félögum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kjartan Henry Finnbogason er fremstur hjá KR
Kjartan Henry Finnbogason er fremstur hjá KR
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Stjarnan og KR eigast við í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á Samsung-vellinum í kvöld en báðir þjálfarar gera tvær breytingar á liðunum.

Ágúst Gylfason gerir tvær breytingar á liði Stjörnunnar frá síðasta leik í Bestu deildinni en Daníel Laxdal og Ólafur Karl Finsen detta út og þá koma þeir Óskar Örn Hauksson og Eggert Aron Guðmundsson inn.

Rúnar Kristinsson gerir einnig tvær breytingar á liði KR en Kjartan Henry Finnbogason og Pálmi Rafn Pálmason koma inn fyrir Þorstein Má Ragnarsson og Stefan Ljubicic.

Lestu beina textalýsingu hér

Leikurinn hefst klukkan 19:45.

Stjarnan:
1. Haraldur Björnsson (m)
4. Óli Valur Ómarsson
6. Sindri Þór Ingimarsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson
14. Ísak Andri Sigurgeirsson
15. Þórarinn Ingi Valdimarsson
19. Eggert Aron Guðmundsson
22. Emil Atlason
23. Óskar Örn Hauksson
24. Björn Berg Bryde
29. Adolf Daði Birgisson

KR:
1. Beitir Ólafsson (m)
4. Hallur Hansson
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Finnur Tómas Pálmason
9. Kjartan Henry Finnbogason
10. Pálmi Rafn Pálmason (f)
11. Kennie Chopart
14. Ægir Jarl Jónasson
16. Theodór Elmar Bjarnason
18. Aron Kristófer Lárusson
23. Atli Sigurjónsson
Athugasemdir
banner