Fotbolti.net
25.06.19 - 19:34
Arnar Helgi Magnússon
Jói útherji

Moreno að ganga í raðir Villareal

Moreno að ganga í raðir Villareal
Canon

Mynd: Getty Images

Alberto Moreno mun að öllum líkindum ganga í raðir spænska félagsins Villareal á allra næstu dögum.
Spænskir fjölmiðlar greina frá því að leikmaðurinn og félagið séu búin að ná samkomulagi en samningur hans við Liverpool rennur út núna um mánaðarmótin. Moreno mun því formlega ganga í raðir spænska félagsins þann 1. júlí.

Moreno fékk ansi fá tækifæri á tímabilinu með Liverpool en hann lék einungis tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni.

Leikmaðurinn þekkir spænsku úrvalsdeildina vel en hann er uppalinn hjá Sevilla og spilaði með aðalliði félagsins á árunum 2012-2014.

Raul Albiol er einnig á leiðinni til Villareal frá Napoli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.