Fotbolti.net
25.07.12 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Mattia Destro til Roma (Staðfest)

Mattia Destro til Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

<i>„Sápuóperunni er lokið. Ég er glaður yfir því að vera orðinn leikmaður Roma,\"</i> sagði Mattia Destro eftir að hafa gengið frá fimm ára samningi við Roma á Ítalíu.

Þessi ungi sóknarmaður kemur frá Genoa en hann var einnig á óskalista Juventus.
Destro er 21 árs en hann skoraði 12 mörk í 30 leikjum fyrir Genoa.

Hann kom upphaflega úr barna- og unglingastarfi Inter en hann hefur leikið fyrir öll yngri landslið Ítalíu.

Miklar vonir eru bundnar við hann hjá Roma en Francesco Totti hefur lýst yfir ánægju sinni með þennan nýjasta liðsmann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.