25.07.12 - 07:30
Elvar Geir Magnússon
Claudio Yacob til West Brom (Staðfest)

Meistari Yacob.

Mynd: Getty Images

Meistari Yacob.

Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Claudio Yacob hefur skrifað undir þriggja ára samning við West Bromwich Albion í ensku úrvalsdeildinni.
Hann hefur æft með liðinu í æfingabúðum í Malmö í Svíþjóð.

Yacob er 25 ára og hefur leikið þrjá landsleiki fyrir Argentínu. Hann hefur lengi átt sér þann draum að spila á Englandi
Á heimasíðu West Brom kemur fram að Yacob muni fá tíma til að aðlagast enska boltanum og einnig til að læra tungumálið.
Fyrr í sumar fékk West Brom markvörðinn Ben Foster alfarið til sín en hann var á lánssamningi frá Birmingham. Þá mun Yassine El Ghanassy spila með liðinu á lánssamningi frá Gent í eitt tímabil.