Fotbolti.net
25.07.12 - 16:32
Hafliði Breiðfjörð

Oscar í Chelsea (Staðfest)

Oscar er orðinn leikmaður Chelsea.

Oscar er orðinn leikmaður Chelsea.

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea staðfesti á vef sínum í dag að brasilíski landsliðsmaðurinn Oscar sé genginn til liðs við félagið.
Oscar sem er tvítugur gamall kom upp úr unglingastarfi Sao Paulo í Brasilíu og vann sig inn í aðalliðið þar árið 2008. Hann var í brasilíska liðinu sem vann Heimsmeistaramót U17 ára landsliða það ár.

Hann yfirgaf Sao Paulo svo í desember 2010 og gekk til liðs við Internacional sem hann kveður nú til að fara til Englands.

Hann lék sinn fyrsta landsleik fyrir Brasilíiu í maí síðastliðnum og skoraði fyrsta landsliðsmarkið í 4-3 tapi gegn Argentínu í júní.

Oscar er sókndjarfur miðjumaður sem getur spilað á köntunum. Hann er þessa stundina með brasilíska landsliðinu á Ólympíuleikunum.

Heimild: Vefur Chelsea

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.