Fotbolti.net
25.07.18 - 20:35
Brynjar Ingi Erluson

Andre Schürrle gerði tveggja ára lánssamning við Fulham (Staðfest)

Andre Schürrle í treyju Fulham

Andre Schürrle í treyju Fulham

Canon

Mynd: Heimasíða Fulham

Enska knattspyrnufélagið Fulham tilkynnti nú rétt í þessu félagaskipti Andre Schürrle frá Borussia Dortmund en hann gerir tveggja ára lánssamning við enska félagið.
Fylgjendur ensku úrvalsdeildarinnar kannast ágætlega við Schürrle en hann var á mála hjá Chelsea frá 2013 til 2015 og gerði þar 14 mörk í 65 leikjum. Hann vann ensku úrvalsdeildina þar undir stjórn Jose Mourinho.

Hann fór þaðan til Wolfsburg áður en hann samdi við Borussia Dortmund.

Hann náði ekki að finna sig í Dortmund og er nú búinn að gera tveggja ára lánssamning við Fulham.

Schürrle var í þýska landsliðshópnum sem vann HM árið 2014 en auk þess hefur hann unnið þýska bikarinn bæði með Wolfsburg og Dortmund.

Jean Michael Seri, Fabri og Maxime Le Marchand hafa allir skrifað undir hjá Fulham í sumar en von er á meiri styrkingu.

#FANTASTISCH 🇩🇪 pic.twitter.com/RiZud73l3i

— Fulham Football Club (@FulhamFC) July 25, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.