Fotbolti.net
25.07.18 - 18:58
Brynjar Ingi Erluson

Brighton fær markahæsta leikmann hollensku deildarinnar (Staðfest)

Alireza Jahanbakhsh

Alireza Jahanbakhsh

Canon

Mynd: Heimasíða Brighton

Enska úrvalsdeildarfélagið staðfesti í dag kaup á iranska vængmanninum Alireza Jahanbakhsh frá AZ Alkmaar.
Jahanbakhsh er 24 ára gamall en hann var keyptur til Brighton á 17 milljónir punda og gerði hann fimm ára samning í dag.

Hann var markahæsti maður hollensku deildarinnar á síðasta tímabili með 21 mark í 33 leikjum.

Þá lék hann með íranska liðinu á HM í sumar en tókst ekki að komast á blað.

Hann er sjöundi leikmaðurinn sem Brighton fær í sumar en liðið hefur fengið Florin Andone, Bernardo, David Button, Yves Bissouma og Leon Balogun.

✍️ BREAKING…

Brighton & Hove Albion have completed the signing of Alireza Jahanbakhsh on a five-year deal for a club record fee.#AlirezaAnnounced 🇮🇷#BHAFC 🔵⚪️

Read ➡️ https://t.co/INlZNJinDT pic.twitter.com/gt1XPgUnLR

— Brighton & Hove Albion ⚽️ (@OfficialBHAFC) July 25, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.