25.07.18 - 14:45
Elvar Geir Magnússon
Clasie aftur til Feyenoord (Staðfest)

Clasie á æfingasvæði Feyenoord fyrir nokkrum árum.

Mynd: Getty Images

Jordy Clasie, miðjumaður Southampton, er kominn aftur til Feyenoord á lánssamningi.
Clasie fór frá Feyenoord til Southampton 2015 á 8 milljónir punda.
Þessi 27 ára leikmaður lék 49 leiki fyrir Dýrlingana en var hjá Club Brugge á lánssamningi á síðasta tímabili. Hann spilaði 20 leiki fyrir félagið og varð með því belgískur meistari.

Lánssamningurinn við Feyenoord er til eins árs.