25.07.18 - 19:33
Brynjar Ingi Erluson
Claudio Gomes til Manchester City (Staðfest)

Claudio Gomes á æfingu með Manchester City

Mynd: Heimasíða Manchester City

Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City staðfesti í dag komu Claudio Gomes til félagsins en hann kemur á frjálsri sölu frá Paris Saint-Germain.
Gomes, sem er 18 ára gamall, er miðjumaður að upplagi en hann er talinn einn efnilegasti miðjumaður heims.
City gerði samkomulag við franska leikmanninn í janúar en gátu þó ekki gert það skriflegt fyrr en hann yrði 18 ára. Hann varð 18 ára í fyrradag og hefur því gert langtímasamning við félagið.
Gomes hefur leikið fyrir U16, U17 og U18 ára landslið Frakklands og á yfir 30 leiki þar.
„Hann hefur verið ótrúlega góður á æfingum, hreint út sagt frábær. Það gæti farið svo að við höldum honum hér í stað þess að lána hann, svona svipað og við gerðum með Phil Foden og Brahim Diaz en eins og ég segi, miðað við það sem við höfum séð af honum á síðustu dögum þá er hann að heilla mig,\" sagði Pep Guardiola um Gomes.