Fotbolti.net
25.07.18 - 12:31
Elvar Geir Magnússon

Gelson Martins til Atletico Madrid (Staðfest)

Gelson Martins er kominn til Atletico.

Gelson Martins er kominn til Atletico.

Canon

Mynd: Getty Images

Atletico Madrid hefur gengið frá kaupum á vængmanninum Gelson Martins frá Sporting Lissabon. Þessi 23 ára leikmaður skrifaði undir sex ára samning.

Ástandið hjá Sporting hefur verið eldfimt en forseta félagsins, Bruno de Carvalho, var steypt af stóli í sumar eftir miklar deilur við leikmenn félagsins. Fyrr á þessu ári mættu grímuklæddir stuðningsmenn á æfingasvæði félagsins og réðust að leikmönnum.

Á heimasíðu Atletico segir að Gelson Martins komi á frjálsri sölu en hann er einn af þeim sem vildu hætta að spila fyrir félagið í kjölfar ástandsins hjá Sporting.
Martins hefur leikið 19 landsleiki fyrir Portúgal en hann spilaði 125 leiki fyrir Sporting Lissabon. Hann skoraði 13 mörk í 52 leikjum á síðasta tímabili. Hann getur spilað á báðum vængjum en hefur mest spilað hægra megin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.