25.07.18 - 18:36
Arnar Daði Arnarsson
Jeppe Hansen lánaður til ÍA (Staðfest)

Jeppe í leik með Keflavík í sumar.

Mynd: Raggi Óla

Jeppe í leik með Keflavík í sumar.

Mynd: Raggi Óla
Danski sóknarmaðurinn Jeppe Hansen hefur verið lánaður til ÍA í Inkasso-deildinni frá Keflavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Keflavík nú rétt í þessu.
„Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur samþykkt að lána Jeppe Hansen til ÍA þar sem eftir lifir af þessu keppnistímabili. Jeppe hefur verið leikmaður Keflavíkur frá árinu 2017 og átti m.a. þátt í að koma liðinu upp í efstu deild. Stjórn knattspyrnudeildar óskar Jeppe velfarnaðar,\" segir í fréttatilkynningunni frá Keflvíkingum
Jeppe hefur spilað ellefu leiki með Keflvíkingum í sumar og ekki enn komið sér á blað. Hann skoraði 15 mörk í 21 leik með liðinu í Inkasso-deildinni í fyrra.
Keflvíkingar eru í afar slæmri stöðu á botni Pepsi-deildarinnar með þrjú stig að loknum þrettán umferðum.
Skagamenn eru í 4. sæti Inkasso-deildarinnar, eftir frábæra byrjun hefur aðeins hallað undir fæti hjá liðinu en ÍA hefur aðeins unnið einn af síðustu fjórum leikjum sínum í deildinni. Þeir eru tveimur stigum á eftir Þór og Víking Ó. sem eru í 2. og 3. sæti deildarinnar.
ÍA mætir Þór í toppbaráttuslag Inkasso-deildarinnar á föstudagskvöldið og gæti farið svo, að Jeppe Hansen spili sinn fyrsta leik fyrir ÍA í þeim leik.
Daninn kom fyrst hingað til lands fyrir tímabilið árið 2014 og lék þá með Stjörnunni í tvö og hálft tímabil áður en hann gekk í raðir KR. Þar lék hann aðeins hálft tímabil áður en hann gekk til liðs við Keflavík fyrir síðasta tímabil.