25.07.18 - 17:30
Elvar Geir Magnússon
Liverpool lánar Allan til Frankfurt (Staðfest)

Allan í smá skoðun.

Mynd: Liverpool

Allan í smá skoðun.

Mynd: Liverpool
Brasilíski miðjumaðurinn Allan Rodrigues de Souza skrifaði í dag undir framlengingu á samningi sínum við Liverpool.
Strax í kjölfarið var gengið frá lánssamningi til Eintracht Frankfurt í Þýskalandi þar sem Allan mun spila á komandi tímabili.

Frankfurt er ríkjandi bikarmeistari í Þýskalandi eftir sigur á Bayern München í úrslitaleiknum í Berlín. Liðið mun taka þátt í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.
Allan er 21 árs og hefur verið í eigu Liverpool síðan 2015, þegar hann kom frá Internacional. Hann hefur ekki leikið aðalliðsleik fyrir Liverpool en verið á lánssamningum hjá SJK, Sint-Truidense, Hertha Berlin og á síðasta tímabili hjá Apollon Limassol.