Fotbolti.net
25.07.18 - 17:49
Brynjar Ingi Erluson

Steve Bruce verður áfram stjóri Aston Villa (Staðfest)

Steve Bruce verður áfram með Aston Villa

Steve Bruce verður áfram með Aston Villa

Canon

Mynd: Getty Images

Steve Bruce, knattspyrnustjóri Aston Villa á Englandi, verður áfram með liðið en félagið staðfesti þetta í dag.
Bruce hefur stýrt Villa frá árinu 2016 en hann kom liðinu í úrslitaleik umspilsins í Championship á síðustu leiktíð. Liðið tapaði fyrir Fulham og mistókst að tryggja sæti sitt í deild þeirra bestu.

Fjárhagsstaða Aston Villa var slæm eftir tímabilið en egypski auðkýfingurinn Nassef Sawiris keypti 55% hlut í félaginu af Dr Tony Xia og bjargaði þar með liðinu frá frekari erfiðleikum.

Bruce fundaði með Aston VIlla í dag varðandi stöðu sína hjá félaginu en sögusagnirnar voru háværar um að Thierry Henry myndi taka við liðinu.

Aston Villa staðfesti það hins vegar í dag að Bruce heldur áfram með liðið á komandi leiktíð. Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason spilar með Villa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.