25.07.18 - 12:15
Elvar Geir Magnússon
Sveinn Aron til Spezia (Staðfest)

Sveinn Aron í leik gegn Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveinn Aron í leik gegn Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Sveinn Aron Guðjohnsen hefur verið seldur frá Breiðabliki til ítalska liðsins Spezia. Þetta er staðfest á blikar.is.
Sveinn Aron sem er tvítugur að aldri kom til Blika frá Val fyrir tveimur árum. Hann hefur leikið 31 leik með Breiðabliksliðinu og skorað í þeim sjö mörk. Sveinn Aron á einnig að baki 17 leiki með yngri landsliðum Íslands og hefur skorað fjögur mörk.
„Málið kom frekar óvænt upp og þrátt fyrir að leikmaðurinn sé mikilvægur hlekkur í Blikaliðinu vildi stjórn knattspyrnudeildar ekki standa í vegi fyrir því að þessi ungi framherji fengi tækifæri til að spreyta sig í atvinnumennsku. Sveinn er núna á leið út til að ganga frá sínum málum og undirgangast læknisskoðun,\" segir á blikar.is
„Blikar óska Sveini Aroni til hamingju með samninginn, þakka honum fyrir hans framlag til félagsins og óska honum velfarnaðar.\"
Sveinn Aron skoraði þrjú mörk í tólf leikjum í Pepsi-deildinni í sumar en Blikar fengu til sín annan sóknarmann, Thomas Mikkelsen, á dögunum. Mikkelsen hefur farið vel af stað í grænu treyjunni.
Spezia hafnaði í tíunda sæti í ítölsku B-deildinni á síðasta tímabili.