Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 25. júlí 2021 06:00
Victor Pálsson
Segir alla leikmenn vilja spila með Pogba
Mynd: EPA
Georginio Wijnaldum væri meira en til í að fá Paul Pogba til Paris Saint-Germain í sumar en hann er sjálfur nýgenginn í raðir félagsins.

Wijnaldum kom til PSG frá Liverpool í sumar en hann kom á frjálsri sölu eftir að hafa staðið sig vel í nokkur ár á Englandi.

Hollenski landsliðsmaðurinn vill sjá Pogba koma í sumar en hann er leikmaður Manchester United og vill enska félagið ekki selja.

Poigba er þó oft orðaður við brottför en hann er samningsbundinn til 2022.

„Ég myndi elska að fá Pogba hingað til okkar. Hann er magnaður. Ég hef spilað gegn honum nokkrum sinnum - þvílíkur leikmaður" sagði Wijnaldum.

„Ef þú spyrð einhvern leikmann í öðru liði hvort hann væri til í að fá Pogba yrði svarið já því hann er framúrskarandi leikmaður, fullur af gæðum."

„Hann er með þetta allt saman, hann er einn besti miðjumaður heims."
Athugasemdir
banner