25.07.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
HSV í viðræðum við Arsenal

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Portúgalski sóknartengiliðurinn Fábio Vieira er aðeins með eitt ár eftir af samningi sínum við Arsenal og er hann ekki partur af áformum Mikel Arteta þjálfara.
Vieira býr þó yfir miklum gæðum sem fótboltamaður og hefur sannað það í gegnum árin. Arsenal keypti hann fyrir um 30 milljónir punda sumarið 2022 en hann fann sig ekki í enska boltanum.
Hann var því lánaður út og gerði fína hluti hjá uppeldisfélaginu Porto tímabilið 2024-25 en þótti of dýr svo hann var ekki keyptur til baka. Hann var þess í stað lánaður til Hamburger SV á síðustu leiktíð og stóð sig frábærlega þar sem hann kom að 13 mörkum í 31 leik.
Vieira vakti athygli ýmissa félagsliða á sér á dvölinni í Hamborg. Fyrr í sumar var greint frá því að Nottingham Forest væri að undirbúa rúmlega 20 milljón punda tilboð í leikmanninn.
Vieira vill þó frekar skipta yfir til HSV sem er í viðræðum við Arsenal um kaupverð. HSV er ekki reiðubúið til að jafna tilboð Forest en Arsenal vill fá um 15 til 20 milljónir punda fyrir Portúgalann.
Vieira skoraði 3 mörk og gaf 10 stoðsendingar í 49 keppnisleikjum með Arsenal.