24.07.26 - 23:50
Ívan Guðjón Baldursson
Gunnar Heiðar: Myndaðist mikill pirringur útaf erfiðum vallaraðstæðum
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK heimsótti Njarðvík í Lengjudeildinni fyrr í kvöld og úr varð svakalegur leikur þar sem fimm mörk og þrjú rauð spjöld litu dagsins ljós.

TENGT EFNI
Lengjudeildin: Njarðvík með endurkomusigur eftir að Davíð Smári fékk rautt
Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari HK, sem stýrði Njarðvík í tvö og hálft ár, var svekktur eftir naumt tap í Njarðvík þar sem sigurmarkið var skorað í uppbótartíma.
„Þetta er súrt tap en það er gaman að koma hingað aftur, ég átti mjög góðar stundir hérna. Það var gaman að sjá fólkið og leikmenn sem voru með mér í fyrra og hittiðfyrra en þetta var ekki mikill fótboltaleikur sem var spilaður hérna í kvöld," sagði Gunnar Heiðar
„Völlurinn var mjög blautur og laus í sér, það var erfitt að fóta sig á vellinum sem sást á því hversu margar sendingar rötuðu ekki á samherja hjá báðum liðum. Þetta datt með þeim í dag og það er bara eins og það er. Þessi leikur bauð ekki upp á mikil gæði, menn voru bara að reyna að halda boltanum inná vellinum og ekki renna. Þetta hefði getað endað hvernig sem er, þessi leikur var mikið kaos. Strákarnir börðust eins og ljón en þetta féll ekki með okkur."
Þetta tap er skellur fyrir HK sem hefði jafnað topplið Aftureldingar á stigum með sigri. Njarðvík klifrar þess í stað upp um tvö sæti á stöðutöflunni og er með 23 stig eftir 15 umferðir, fimm stigum á eftir HK og með leik til góða.
Gunnar Heiðar tjáði sig einnig um lætin að leikslokum þegar Oumar Diouck og Aron Kristófer Lárusson fengu að líta sitthvora rauða spjaldið eftir átökin. Gunnar segist ekki hafa séð hvað mönnum gekk á og harmar að það hafi verið gripið til handalögmála.
„Það myndaðist mikill pirringur útaf erfiðum vallaraðstæðum og svo skora þeir þetta sigurmark í lokin sem verður til þess að það fara einhverjir ljótir hlutir í gang í lokin sem ég bara sá ekki og get ekki tjáð mig um."

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 14 | +22 | 31 |
| 2 | Þróttur R. | 15 | +17 | 30 |
| 3 | Fylkir | 14 | +12 | 30 |
| 4 | HK | 16 | +9 | 28 |
| 5 | Njarðvík | 15 | +2 | 23 |
| 6 | Grótta | 14 | +1 | 22 |
| 7 | Vestri | 15 | -5 | 21 |
| 8 | Leiknir R. | 15 | -4 | 19 |
| 9 | Grindavík | 15 | -5 | 14 |
| 10 | ÍR | 15 | -11 | 13 |
| 11 | Völsungur | 15 | -15 | 11 |
| 12 | Ægir | 15 | -23 | 8 |