Fotbolti.net
25.07.26 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þengill með lausan samning í haust

Þengill með lausan samning í haust
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn Þengill Orrason er á mála hjá Fram en hann spilar á láni með Fjölni líkt og í fyrra. Hann spilaði tólf leiki með Fjölni í Lengjudeildinni í fyrra og hefur spilað þrettán leiki í 2. deild í ár, og skorað eitt mark.

Hann er með lausan samning í haust og gæti yfirgefið Fram.
Hetjan í Úlfarsárdalnum: Draumur að spila fyrir Ragga
TENGT EFNI

Hetjan í Úlfarsárdalnum: Draumur að spila fyrir Ragga

Þengill skaust upp á sjónarsviðið 2023 þegar hann skoraði tvö mörk í fimm leikjum með Fram í neðri hluta Bestu deildarinnar þegar Fram var í mikilli fallbaráttu. Þá var Ragnar Sigurðsson þjálfari liðsins og Fram hélt sér uppi á einu stigi.

Þengill er fæddur árið 2005 og hefur verið að spila með liði Hofstra háskólans í Bandaríkjunum síðustu vetur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.