25.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Vilja 25 milljónir fyrir Casadó

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Atlético Madrid hefur áhuga á Marc Casadó, miðjumanni Barcelona sem á tvö ár eftir af samningi við Spánarmeistarana.

TENGT EFNI
Atlético endurvekur áhuga sinn á leikmanni Barcelona
Casadó, sem verður 23 ára í september, hefur komið við sögu í 70 leikjum á tveimur tímabilum undir stjórn Hansi Flick sem lítur á hann sem góða varaskeifu fyrir miðjuna.
Talið er að Börsungar séu reiðubúnir til að selja Casadó fyrir rétta upphæð, sem gæti numið um 25 milljónum evra auk endurkaupsrétti og hlutfalli af endursöluvirði leikmannsins.
Casadó er varnartengiliður að upplagi en getur einnig spilað framar á miðjunni eða sem hægri bakvörður.
Hann er fæddur og uppalinn í Barcelona sem er hans draumafélag.