Fotbolti.net
25.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Hafnaði ensku úrvalsdeildinni til að vera áfram í Arabíu

Hafnaði ensku úrvalsdeildinni til að vera áfram í Arabíu
Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn Josh Brownhill hefur hafnað nokkrum áhugasömum félagsliðum í sumar til að vera áfram hjá Al-Shabab í Sádi-Arabíu.
Upp með Burnley en fer núna til Sádi-Arabíu
TENGT EFNI

Upp með Burnley en fer núna til Sádi-Arabíu

Brownhill fór til Al-Shabab á frjálsri sölu í fyrrasumar eftir að hafa verið lykilmaður og fyrirliði Burnley. Hann hjálpaði liðinu aftur upp í úrvalsdeildina áður en samningurinn rann út.

Brownhill er með eitt ár eftir af samningi hjá Al-Shabab og hafnaði meðal annars Neom SC á dögunum, þar sem má finna öfluga leikmenn í hópnum. Fyrrum úrvalsdeildarstjörnurnar Alexandre Lacazette og Saïd Benrahma eru á mála hjá félaginu ásamt Malang Sarr, Marcin Bulka, Nathan Zézé, Amadoun Koné og Luciano Rodríguez sem eru nokkuð verðmætir leikmenn.

Í liði Al-Shabab má finna menn á borð við Wesley Hoedt, Yacine Adli, Yannick Carrasco og Daniel Podence. Liðið endaði þó aðeins sex stigum fyrir ofan fallsvæðið á síðustu leiktíð, tíu stigum fyrir neðan Neom.

Enskir fjölmiðlar segja að Brownhill hafi hafnað tækifæri á endurkomu í ensku úrvalsdeildina til að vera áfram hjá Al-Shabab. Ekki er tilgreint hvaða félagslið reyndi við Brownhill, sem er 30 ára gamall og með 111 úrvalsdeildarleiki að baki.
Hafnaði ensku úrvalsdeildinni til að vera áfram í Arabíu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.