Fotbolti.net
25.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Varamarkvörður framlengir við Liverpool

Varamarkvörður framlengir við Liverpool
Canon

Mynd: EPA

Frederick Woodman, þekktur sem Freddie Woodman, er búinn að gera nýjan samning við Liverpool.
Bestu og verstu kaup Arne Slot
TENGT EFNI

Bestu og verstu kaup Arne Slot

Woodman er 29 ára gamall og skipti til Liverpool á frjálsri sölu í fyrrasumar. Hann fékk að spila fjóra leiki á síðustu leiktíð þegar Alisson Becker og Giorgi Mamardashvili voru ekki til taks.

Hann varði 6 skot af 9 í 0-3 tapi gegn Crystal Palace í deildabikarnum og kom svo inn af bekknum í sigri í nágrannaslagnum gegn Everton þegar Mamardashvili meiddist. Woodmann átti stórleik í 3-1 sigri gegn Crystal Palace í úrvalsdeildinni en tókst svo ekki að koma í veg fyrir 3-2 tap gegn Manchester United.

„Ég er himinlifandi með nýjan samning. Síðasta tímabil var stórkostlegt fyrir mig og ég var svo ánægður að sjá nýjan samning á borðinu þegar undirbúningstímabilið fór af stað. Ég er svo stoltur að vera hérna," sagði Woodman meðal annars.

Varamarkvörður framlengir við Liverpool
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.