Fotbolti.net
24.07.26 - 23:52
Snæbjört Pálsdóttir

„Einn skemmtilegasti leikur sem ég hef spilað á ferlinum“

Auglýsing
Henríetta Ágústsdóttir kom við sögu í báðum mörkum HK og innsiglaði sigurinn með stórglæsilegu skoti langt utan af velli.

Henríetta Ágústsdóttir kom við sögu í báðum mörkum HK og innsiglaði sigurinn með stórglæsilegu skoti langt utan af velli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Henríetta Ágústsdóttir átti stóran þátt í 2-0 sigri HK gegn Haukum á Ásvöllum í kvöld. Hún átti skallann sem leiddi til fyrra marksins áður en hún innsiglaði sigurinn með stórkostlegu skoti skömmu síðar.

Valgerður Lilja Arnarsdóttir kom HK yfir á 78. mínútu og aðeins þremur mínútum síðar skoraði Henríetta annað mark gestanna.

Lestu um leikinn: Haukar 0 - 2 HK

„Tilfinningarnar eru ógeðslega góðar. Þetta var ógeðslega erfitt og við vorum að berjast fyrir þessu allan tímann. Það er mjög gott að fara heim með þrjú stig,“ sagði Henríetta eftir leik.

Henríetta skoraði stórglæsilegt mark langt utan af velli. Hún sá markvörð Hauka vera á leið aftur í markið og ákvað að láta reyna á skotið.

„Ég sá að markmaðurinn var að hlaupa aftur í markið en ákvað bara að láta vaða. Það var mjög gott að skora þetta.“

„Það var ógeðslega gaman. Það var ógeðslega góð orka í liðinu okkar og þetta er örugglega einn skemmtilegasti leikur sem ég hef spilað á ferlinum.“


Sigurinn lyfti HK  upp fyrir Hauka og í toppbaráttu Lengjudeildarinnar. Henríetta segir liðið ætla að halda áfram að horfa upp töfluna.

„Við ætlum að halda áfram að klifra töfluna. Þetta er búin að vera ótrúleg deild með ótrúlegum úrslitum. Við ætlum að sækja þrjú stig í öllum leikjunum sem eftir eru og reyna að komast upp.“


Aðspurð hvað hefði skilið liðin að í kvöld var hún ekki í vafa.

„Bara barátta og vilji. Það sást allan tímann. Við vorum alltaf með læti, að berjast fyrir hver aðra og hlaupa fyrir hver aðra. Það skilaði okkur þessum þremur stigum.“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.