Fotbolti.net
24.07.26 - 23:53
Snæbjört Pálsdóttir

Fyrirliði HK eftir sigurinn: „Ég var bara að bíða eftir að mörkin kæmu“

Auglýsing
Valgerður Lilja Arnarsdóttir, fyrirliði HK, skoraði fyrra mark liðsins í 2-0 sigrinum gegn Haukum á Ásvöllum.

Valgerður Lilja Arnarsdóttir, fyrirliði HK, skoraði fyrra mark liðsins í 2-0 sigrinum gegn Haukum á Ásvöllum.

Canon

Mynd: wHK

Hertz

Valgerður Lilja Arnarsdóttir, fyrirliði HK, var að vonum ánægð eftir 2-0 sigur liðsins gegn Haukum á Ásvöllum í kvöld.

Valgerður kom HK á bragðið með fyrra marki leiksins og sagði sigurinn hafa verið sérstaklega sætan eftir öfluga frammistöðu liðsins.

Lestu um leikinn: Haukar 0 - 2 HK

„Þetta var svo sætt. Þetta var mjög gott og gaman, sérstaklega hvernig liðið mætti. Við vorum á tánum allan tímann og ég er ógeðslega stolt af liðinu og okkur í kvöld.“


Fyrirliðinn skorar ekki á hverjum degi og naut þess því sérstaklega að koma boltanum í netið.

„Það var ógeðslega gaman. Ég skora mjög sjaldan, þannig að þetta var mjög gaman. En fyrst og fremst var ég ánægð með hvernig liðið mætti. Við vorum í þeim allan tímann og gáfum þeim engan tíma. Ég held að liðsandinn hafi skilað okkur sigrinum.“


Mikil athygli hafði verið á Haukum fyrir leikinn vegna endurkomu Söru Bjarkar Gunnarsdóttur, sem lék sinn fyrsta leik fyrir félagið í 18 ár. Valgerður viðurkenndi að umgjörðin hefði gefið leiknum aukið vægi en sagði HK-liðið fyrst og fremst hafa einbeitt sér að sjálfu sér.

„Já og nei. Við gerum bara okkar en á sama tíma var kannski aðeins meira í kringum þennan leik. Við vorum mögulega enn meira á tánum en fyrst og fremst vorum við bara að pæla í okkur.“


HK færðist upp fyrir Hauka með sigrinum og inn í þétta toppbaráttu Lengjudeildarinnar. Valgerður ætlar þó ekki að horfa of langt fram í tímann.

„Þessi deild hefur verið mjög óútreiknanleg. Við höldum bara áfram að gera okkar og sjáum hvað gerist.“


Mörk HK komu seint en fyrirliðinn segist allan tímann hafa haft trú á að þau myndu koma.

„Mér fannst við vera með leikinn allan tímann. Við vorum að finna sendingar á milli þeirra, náðum að spila boltanum niðri og sköpuðum góð færi. Ég var bara að bíða eftir að mörkin kæmu. Maður var orðinn smá óþolinmóður en vissi alltaf að þau myndu koma.“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.