Joe Gomez klár
Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, verður fjarri góðu gamni þegar liðið fær Arsenal í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni á mánudagskvöld.
Henderson meiddist aftan í læri í sigrinum gegn Chelsea um síðustu helgi.
Henderson meiddist aftan í læri í sigrinum gegn Chelsea um síðustu helgi.
Thiago Alcantara átti öfluga innkomu í síðari hálfleiknum gegn Chelsea og hann gæti byrjað í leiknum á mánudaginn.
„Við sjáum til. Við eigum nokkra daga eftir af æfingum og við sjáum til hvernig við setjum þetta upp gegn Arsenal. Ég er með mínar hugmyndir en af hverju ætti ég að ákveða þetta í dag ef ég hef tíma þangað til á mánudag? Hann kemur til greina, að sjálfsögðu. Við sjáum til," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, um Thiago í dag.
Joe Gomez er byrjaður að æfa aftur eftir meiðsli og gæti komið inn í vörnina en Joel Matip er ennþá meiddur.
Athugasemdir