Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
Óskar Hrafn: Hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
   lau 25. september 2021 17:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hallgrímur Mar: Sorglegt á þessu augnabliki að eiga svona leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Tilfinningin er ömurleg, við ætluðum okkur sigur í dag," sagði Hallgrímur Mar Steingrímsson leikmaður KA eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn FH í dag.

Lestu um leikinn: KA 2 -  2 FH

KA endar í 4. sæti deildarinnar en með sigri hefði liðið endað í 3. sæti sem gæti gefið evrópusæti.

„Vildum halda þessu evrópusæti, þetta er reyndar ekkert evrópusæti ennþá, Víkingur þarf að vinna bikarinn en auðvitað ætluðum við að halda í vonina með að taka sigur í dag en við vorum ekki alveg nógu góðir því miður," sagði Hallgrímur.

Hann var gríðarlega svekktur hvernig liðið mætti í leikinn þegar svona mikið er undir.

„Mér fannst við vera á eftir þeim í öllum atriðum. Þeir eru með unga og ferska stráka sem leggja sig fram og eru góðir í fótbolta finnst mér. Auðvitað þegar það er svona mikið undir þá eigum við að mæta sterkari til leiks, sorglegt á þessu augnabliki að eiga svona leik."

Hallgrímur gat lítið sagt þegar hann var spurður út í frammistöðu liðsins á tímabilinu.

„Það er bara búið að vera gott, erum með 40 stig, það er ágætt en ég nenni bara ekki að tala um það núna því miður," sagði Hallgrímur að lokum.
Athugasemdir
banner