26.02.18 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Brynjar Atli í Víði (Staðfest) - Hörður ekki með Njarðvík í sumar

Brynjar Atli Bragason.

Mynd: Njarðvík

Brynjar Atli Bragason.

Mynd: Njarðvík
Njarðvík hefur ákveðið að lána markvörðinn Brynjar Atla Bragason til nágrannaliðsins Víðis í Garði.
Með þessu vonast Njarðvík til að Brynjar afli sér meiri reynslu. Brynjar Atli kemur til með að vera aðalmarkvörður Víðismanna á tímabilinu að því er segir á heimasíðu Njarðvíkur.

„Við teljum þetta vera stórt skref fyrir Brynjar Atla sem er á átjánda ári að verða aðalmarkvörður Víðis í sumar. Við óskum honum góðs gengis í komandi leikjum.\"
Sjá einnig:
Ungur Njarðvíkingur æfði með Bolton
Njarðvík ætlar að finna sér annan markvörð og verður sá tilkynntur fljótlega eða fyrir næsta leik sem er 10. mars gegn ÍBV í Lengjubikarnum.
Þrír aðrir leikmenn hafa yfirgefið herbúðir Njarðvíkur á síðustu dögum. Markvörðurinn Hörður Fannar Björgvinsson fór á láni í Álftanes, en hann er að fara í nám erlendis og treysti sér ekki í að spila með Njarðvík í sumar. Davíð Guðlaugsson fór í Víði og Atli Haukur Brynleifsson fór í Reyni Sandgerði.
Njarðvík mun spila í Inkasso-deildinni í sumar eftir að hafa rúllað yfir 2. deildina síðasta sumar.

Hörður Fannar spilar ekki í Njarðvík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson