Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 26. febrúar 2020 17:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tyrkland: Theódór Elmar á skotskónum í góðum sigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Theódór Elmar Bjarnason skoraði fyrra mark Akhisarspor þegar liðið bar sigur úr býtum gegn Giresunspor í tyrkensku B-deildinni á þessum ágætis miðvikudegi.

Markið skoraði Theódór Elmar á 17. mínútu leiksins, hans annað deildarmark á þessu tímabili.

Akhisarspor komst svo í 2-0 fyrir hálfleik þegar Erhan Çelenk skoraði. Giresunspor átti fá svör í seinni hálfleiknum og var niðurstaðan tveggja marka sigur Elmars og félaga.

Akhisarspor fer með þessum sigri upp í sjötta sæti B-deildarinnar, en það sæti veitir þáttökurétt í umspili um sæti í tyrknesku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner