Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 26. febrúar 2021 21:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalía: Bjarki Steinn á bekknum - Mikael Egill lék í toppslag
Mikael Egill Ellertsson
Mikael Egill Ellertsson
Mynd: SPAL
Í dag fóru fram leikir tveggja Íslendingaliða í ítalska boltanum.

Venezia gerði í kvöld 1-1 jafntefli í ítölsku B-deildinni. Bjarki Steinn Bjarkason var ónotaður varamaður en Óttar Magnús Karlsson var fjarri góðu gamni.

Venezia komst í 0-1 á 25. mínútu en heimamenn í Empoli jöfnuðu á 70. mínútu og þar við sat. Empoli er í toppsæti eildarinnar og Venezia er sem stendur í 3. sæti deildarinnar.

Í ítölsku Primavera 1 deildinni lék Framarinn Mikael Egill Ellertsson allan leikinn með liði Spal í 0-1 sigri á Atalanta. Liðin eru í toppbaráttunni og er Spal sem stendur í 3. sæti deildarinnar. Efstu sex liðin fara í úrslitakeppni.

Primavera er blanda af unglingaliði og varaliði.
Athugasemdir
banner
banner