Overmars þarf að skila stórri bónusgreiðslu


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Marc Overmars var á dögunum rekinn frá Ajax með skömmum eftir að upp komst um kynferðisáreitismál á vinnustaðnum.
Overmars sendi meðal annars typpamyndir til kvenkyns samstarfsmanna sem ákváðu í sameiningu að fara með málið lengra.
Ajax staðfesti í byrjun febrúar að Overmars væri rekinn og tilkynnti svo í gær að hann þarf að skila stórri bónusgreiðslu sem hann fékk þegar hann skrifaði undir nýjan samning við Ajax í janúar.
Sú greiðsla nemur 1,25 milljónum evra og rennur beint til fjölskyldu Abdelhak Nouri, fyrrum leikmanns Ajax sem lenti í dái eftir að hafa hnigið niður í æfingaleik.
Sjá einnig:
Overmars hættur (Staðfest) - Áreitti kvenkyns starfsmenn
Overmars hikaði ekki við að senda typpamyndir
Ajax borgar fjölskyldu Nouri ríflega milljarð
