26.03.18 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Dusan tekur fjóra með sér frá Fjölni til Hamars (Staðfest)

Mynd: Hamar

Mynd: Hamar
Hvergerðingar hafa fengið ansi góðan liðsstyrk fyrir komandi átök í 4. deild karla.
Dusan Ivkovic tekur við stjórn liðsins eftir að hafa þjálfað hjá Fjölni undanfarin fjögur ár.

Dusan er með UEFA A þjálfaragráðu og tekur fjóra unga stráka með sér frá Fjölni, þar á meðal Kristján Marko Stosic sem er fyrrum fyrirliði 2. flokks.
Matthías Ásgeir Ramos Rocha er öflugur hafsent og koma tveir aðrir miðjumenn auk hans, Arnór Harðarson og Guðmundur Karl Þorkelsson.
Serbarnir Goran Vunduk og Aleksndar Rusic eru einnig búnir að semja við Hvergerðinga en þeir eru vanir hörkunni úr neðri deildunum í heimalandinu. Tveir aðrir erlendir leikmenn gætu skrifað undir samninga fyrir upphaf Íslandsmótsins.
Þá verða reynsluboltarnir Sam Malsom, Hafþór Vilberg Björnsson og Ingþór Björgvinsson áfram hjá Hamri og bætast Bjarki Rúnar Jónínuson, Stefán Þór Hannesson og Jón Bjarni einnig við hópinn.