26.03.18 - 15:30
Ívan Guðjón Baldursson
Elneny framlengir við Arsenal (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Egypski miðjumaðurinn Mohamed Elneny er búinn að framlengja samning sinn við Arsenal.
Elneny kom til Arsenal í janúar 2016 og hefur síðan þá spilað 66 leiki fyrir félagið, 34 í ensku úrvalsdeildinni.

Elneny, sem verður 26 ára í júlí, er í uppáhaldi hjá mörgum stuðningsmönnum Arsenal. Þeir eru ánægðir með vinnuframlagið sem hann leggur fram í hverjum leik.
Elneny er fyrir aftan Granit Xhaka, Aaron Ramsey og Jack Wilshere í goggunarröðinni en hann fær mikinn spilatíma í bikar- og evrópukeppnum.
Elneny er lykilmaður í landsliði Egyptalands og hefur leikið 57 landsleiki. Hann fer með Egyptum til Rússlands í sumar.
Ekki er tekið fram hversu langt samningstímabilið er. Búist er við að það sé á bilinu þrjú til fimm ár.