Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 26. mars 2020 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Juan Mata um Van Gaal: Hlýr og einlægur
Mynd: Getty Images
Juan Mata, leikmaður Manchester United, hefur miklar mætur á Louis van Gaal fyrrum stjóra félagsins.

Mata segist hafa verið hræddur við Hollendinginn í fyrstu en segir hann vera gull af manni.

„Ég var hræddur við hann í fyrstu ég get sagt ykkur það. Hann var samt mjög fínn maður, mjög einlægur og skynsamlegur," sagði Mata.

„Maður bjóst ekki við því en stundum þegar hann talaði um mikilvæga hluti þá báru tilfinningarnar hann ofurliði og hann brast í grát.

„Þegar hann kom fyrst til félagsins tók hann mig á fund ásamt Ryan Giggs. Eftir þennan fund áttaði ég mig á því hversu hlýr og einlægur einstaklingur hann er. Hann er mikið meira en knattspyrnustjóri, hann er frábær manneskja sem kenndi mér margt."

Athugasemdir
banner
banner
banner