Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
banner
   fim 26. mars 2026 21:14
Brynjar Ingi Erluson
Carragher velur tíu bestu leikmenn í sögu Liverpool - Salah og Van Dijk á listanum
Mo Salah og Van Dijk eru á listanum
Mo Salah og Van Dijk eru á listanum
Mynd: EPA
Sparspekingurinn Jamie Carragher hefur valið tíu bestu leikmenn í sögu enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, en þar má finna tvo leikmenn sem spila með liðinu í dag.

Carragher er annar leikjahæsti leikmaður í sögu Liverpool og á þá flesta Evrópuleiki með liðinu.

Hann velur listann sem var birtur á heimasíðu Liverpool fyrir klukkutíma síðan.

Mohamed Salah og Virgil Van Dijk eru báðir á listanum hjá Carragher, en Salah er í sjötta sæti og þá er Van Dijk í áttunda sæti. Þeir eru einu núverandi leikmenn liðsins sem komast á listann.

Það ætti ekki að koma neinum á óvart að Carragher velur Steven Gerrard, fyrrum samherja sinn, sem besta leikmann í sögu félagsins og kemur Skotinn Kenny Dalglish næstur á eftir honum.

Ian Callaghan, leikjahæsti leikmaður Liverpool frá upphafi, er í tíunda sæti listans. Ian Rush, markahæsti leikmaður félagsins, er í 5. sæti.

Listinn í heild sinni:
1. Steven Gerrard
2. Kenny Dalglish
3. Graeme Souness
4. John Barnes
5. Ian Rush
6. Mohamed Salah
7. Alan Hansen
8. Virgil van Dijk
9. Kevin Keegan
10. Ian Callaghan


Slapp
Athugasemdir
banner
banner