Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   fim 26. mars 2026 20:12
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Mér líður bara mjög vel, það er ekki annað hægt, góð frammistaða, góður leikur" sagði Lúðvík Gunnarsson, þjálfari u21 landslið Íslands eftir 6-2 sigri á Eistlandi.


Lestu um leikinn: Ísland U21 6 -  2 Eistland U21

Hvernig fannst þér Viktor Bjarki og Daníel Tristan spila saman?

„Þeir gerðu bara virkilega vel, smá tíma að ná taktinum í hvernig við vildum gera hlutina, en um leið þegar við náðum því þá fannst mér við bara gaman að horfa á þá, horfa á okkur spila sóknarleikinn sérstaklega í dag. Varnarleikurinn eftir að við náðum að laga svona ákveðin atriði sem við þurftum að laga, þá vorum við að mínu mati með þetta. Það er bara hrós á drengina fyrir að gera þessa hluti sem við viljum að gera bara einstaklega vel."

Hvernig fannst þér hápressan?

„Við vitum hvernig þeir spila og hvernig þeir vilja spila, við vorum búnir að undirbúa okkur fyrir það. Mér fannst við díla vel við það, við skorum náttúrulega strax eftir eina og hálfa mínútu. Eftir að við náðum aðeins að laga varnarleikinn okkar þá komust þeir lítt áleiðis, við getum alveg orðað þannig."

Eftir fyrsta markið og um það bil þegar Eistar skora sitt fyrsta var drop í frammistöðu?

„Nei, kannski ekki drop. Vorum dálítið slitnir, vorum ekki alveg að gera hlutina nákvæmlega sem við vildum gera. Þetta eru bara detailar, þetta er kannski meter hægri, meter til vinstri sem við þurftum að laga. Um leið og við löguðum það, það var ekki að menn voru droppa eða ekki leggja sig fram eða hlaupa. Heldur spurning um smáatriði, um leið og við löguðum það, þá komust þeir ekki nánast, ekki lönd né strönd. Þetta er bara spurning um það, ef menn gera það vel þá verður það erfitt fyrir eins og Eistana í dag."

Hvernig fannst þér varamennirnir koma inn í leikinn í dag?

„Þerir áttu náttúrulega frábæra innkomu, við töluðum aðeins um það í gær, hvað hópurinn væri í raun og veru breiður. Hausverkur þjálfarans er að velja ellefu sem starta, því að það eru margir sem koma til greina. Á sama tíma þá skiptir máli þegar að þú færð eitthvað hlutverk að þú neglir hlutverkið sem þú færð og ef þú ert í hlutverki varamanns þá verður þú að negla það eins vel og hægt er. Bæði í undirbúningi og aðdraganda leiksins og svo þegar þú kemur inn á. Þessir gaurar sem komu inn á í dag þeir gerðu það svo sannarlega. Það er virkilega bara stórt hrós á bæði þá sem starta og þá sem komu inn á."

Daníel Freyr Kristjánsson byrjaði á bekknu, af hverju var það?

„Við erum bara að hugsa vel um Daníel, hann er búin að vera í smá meiðsla periodi aðdraganda þessa glugga. Spilaði á sunnudaginn, núna er fimmtudagur, svo er mánudagur aftur leikur: Það var of mikið fyrir Daníel að spila þrjá 90 mínútna leiki á einni viku. Þannig að við erum að vera skynsamir, okkur fannst það tilvalið að koma honum inn í leikinn daginn í stað þess að byrja honum. Aftur það er annar leikur á mánudaginn."

Hvernig líður þér með næsta leik gegn Frökkum?

„Mér líst bara mjög vel á það. Það er skemmtilegt að spila við góð lið. Það er mikil áskorun fyrir okkur, bæði leikmenn og þjálfara að undirbúa lið fyrir leik gegn þessum sterku þjóðum. Ég er bara spenntur. Við erum búnir að undirbúa okkur vel og förum í það núna með drengjunum. Fókusið var á þennan leik en núna erum við að fara undirbúa þá fyrir þann leik. Svo er það spurning um þetta eins og ég sagði áðan að við executum það sem við viljum gera eins vel og hægt er."

Er raunhæft að vinna gegn Frökkum?

„Já, hundrað prósent. Værum ekki í þessu ef við teldum það ekki raunhæft. Við stefnum auðvitað á að ná í góð úrslit. Það er alltaf markmiðið."



Slapp
banner