Tyrkland 1 - 0 Rúmenía
1-0 Ferdi Kadioglu ('53 )
1-0 Ferdi Kadioglu ('53 )
Tyrkneska landsliðið er komið í úrslitaleik um sæti á HM eftir að hafa unnið Rúmeníu, 1-0, í undanúrslitum umspilsins í kvöld.
Ferdi Kadioglu skoraði sigurmarkið á 53. mínútu eftir stórkostlega fyrirgjöf inn á teiginn. Kadioglu, sem er á mála hjá Brighton, stakk sér inn fyrir á hárréttum tíma og setti boltann á milli fóta hjá markverði Rúmeníu.
Kenan Yildiz átti skot sem hafnaði í þverslá en Rúmenar héldu í vonina enda skorað í síðustu átta útileikjum. Það fór aðeins um Tyrki þegar skot Valentin Mihaila hafnaði í stönginni, en hann var hvort eð er í rangstöðu og hefði því markið aldrei talið.
Þetta reyndist besta færi Rúmena í síðari hálfleiknum og eru það því Tyrkir sem fara áfram í úrslitaleikinn um sæti á HM. Tyrkir mæta Kósóvó eða Slóvakíu í úrslitaleiknum og reyna þar að komast á HM í fyrsta sinn síðan 2002.
Athugasemdir


